Í 18. viku 2024 keypti Nova Klúbburinn hf. 3.459.000 eigin hluti að kaupverði 13.955.740 kr. í samræmi við eftirfarandi:
Dagsetning | Tími | Keyptir hlutir | Viðskiptaverð (gengi) | Kaupverð (kr.) |
29.04.2024 | 10:04:17 | 835.000 | 4.06 | 3.390.100 |
30.04.2024 | 11:07:18 | 858.000 | 4.04 | 3.466.320 |
02.05.2024 | 10:13:54 | 778.000 | 4.02 | 3.127.560 |
03.05.2024 | 10:55:46 | 988.000 | 4.02 | 3.971.760 |
Samtals | 3.459.000 | 13.955.740 |
Viðskiptin eru í samræmi við endurkaupaáætlun Nova Klúbbsins sem tilkynnt var um í Kauphöll Íslands hf. þann 24. apríl 2024. Endurkaup munu samkvæmt áætluninni nema að hámarki 550 milljónum kr. að kaupverði og mun áætlunin vera í gildi þar til því hámarki er náð, þó aldrei lengur en fram að aðalfundi félagins 2025.
Nova Klúbburinn átti 850.000 eigin hluti fyrir viðskiptin og á því að þeim loknum 4.309.000 hluti, eða um 0,094% af útgefnum hlutum í félaginu, og nemur heildarkaupverð þeirra 17.389.740 kr.
Framkvæmd endurkaupaáætlunarinnar verður í samræmi við lög um hlutafélög, nr. 2/1995, 5. gr. reglugerðar Evrópuþingsins og ráðsins (ESB) nr. 596/2014, um markaðssvik, sbr. lög um aðgerðir gegn markaðssvikum, nr. 60/2021, sem og framselda reglugerð framkvæmdastjórnarinnar nr. 2016/1052/EB, sem hefur að geyma tæknilega skilmála varðandi endurkaupaáætlanir.
Nánari upplýsingar veitir Þórhallur Jóhannsson, fjármálastjóri Nova Klúbbsins, á fjarfestatengsl@nova.is
