Festi birtir uppgjör sitt fyrir 1. ársfjórðung 2023 eftir lokun markaða miðvikudaginn 3. maí næstkomandi.
Afkomufundur með markaðsaðilum 4. maí kl. 8:30.
Afkomufundur fyrir markaðsaðila verður haldinn fimmtudaginn 4. maí 2023 kl. 8:30 í höfuðstöðvum félagsins að Dalvegi 10 – 14 í Kópavogi. Á fundinum munu Ásta S. Fjeldsted, forstjóri Festi, og Magnús Kr. Ingason, fjármálastjóri Festi, kynna afkomu samstæðunnar á fyrsta ársfjórðungi og svara spurningum.
Fundinum verður einnig streymt beint á vefsíðu félagsins þar sem skráning á fundinn fer jafnframt fram: https://www.festi.is/cc/uppgjor-1f-2023. Þátttakendur sem fylgjast með rafrænt geta spurt spurninga á meðan á fundi stendur með því að senda tölvupóst á netfangið fjarfestatengsl@festi.is. Spurningum verður svarað að kynningu lokinni.
Kynningarefni vegna fundarins verður hægt að nálgast að honum loknum á heimasíðu Festi: https://www.festi.is/r/fjarhagsupplysingar
