Í 2. viku 2023 keypti Sýn hf. 310.000 eigin hluti að kaupverði 18.872.500 eins og nánar er greint frá hér á eftir:
Dagsetning | Tími | Keyptir hlutir | Viðskiptaverð | Kaupverð (kr) |
9.1.2023 | 13:42:46 | 50.000 | 60,25 | 3.012.500 |
10.1.2023 | 12:24:21 | 50.000 | 60,25 | 3.012.500 |
11.1.2023 | 10:47:11 | 10.000 | 61,00 | 610.000 |
11.1.2023 | 13:25:58 | 50.000 | 61,25 | 3.062.500 |
11.1.2023 | 14:39:46 | 10.000 | 61,00 | 610.000 |
12.1.2023 | 13:58:35 | 20.000 | 61,00 | 1.220.000 |
12.1.2023 | 14:36:10 | 50.000 | 61,25 | 3.062.500 |
13.1.2023 | 13:28:26 | 50.000 | 61,25 | 3.062.500 |
13.1.2023 | 13:50:39 | 20.000 | 61,00 | 1.220.000 |
Samtals | 310.000 | 18.872.500 |
Er hér um að ræða kaup félagsins á eigin hlutum í samræmi við endurkaupaáætlun félagsins sem tilkynnt var um í Kauphöll þann 4. nóvember 2022.
Sýn hf. átti 2.012.886 eigin hluti fyrir viðskiptin og á að þeim loknum 2.322.886 eigin hluti eða sem nemur 0,87% af útgefnum hlutum í félaginu og nemur heildarkaupverð þeirra 137.988.024 kr.
Endurkaupin munu að hámarki nema 4.958.678 hlutum, eða um 1,85% af útgefnum hlutum félagsins, þó þannig að fjárhæð endurkaupanna fari ekki yfir 300 milljónir króna. Endurkaupaáætlunin er í gildi til 18. september 2023, nema skilyrði um hámarkskaup verði uppfyllt fyrir þann tíma.
Framkvæmd endurkaupaáætlunarinnar er í samræmi við lög um hlutafélög nr. 2/1995, reglugerð Evrópuþingsins og ráðsins (ESB) um markaðssvik nr. 296/2014 um markaðssvik og framselda reglugerð Framkvæmdastjórnarinnar (ESB) nr. 2016/1052 um tæknilega eftirlitsstaða fyrir skilyrðunum sem gilda um endurkaupaáætlanir og verðjöfnunarráðstafanir sbr. lög um aðgerðir gegn markaðssvikum nr. 60/2021.
Nánari upplýsingar veita:
Fjárfestatengsl Sýnar í gegnum netfangið fjarfestatengsl@syn.is
