Landsbankinn mun halda lokað útboð á sértryggðum skuldabréfum þriðjudaginn 10. janúar kl. 15:00. Boðnir verða til sölu tveir óverðtryggðir flokkar, LBANK CB 25 og LBANK CB 27.
Áætlaður uppgjörsdagur er 17. janúar 2023.
Lánshæfiseinkunn sértryggðra skuldabréfa Landsbankans er A með stöðugum horfum samkvæmt mati S&P.
Markaðsviðskipti Landsbankans hafa umsjón með útboðinu. Hægt er að nálgast nánari upplýsingar í síma 410-7330 eða með tölvupósti, verdbrefamidlun@landsbankinn.is.
