Stjórn Kviku banka hf. („Kvika“ eða „félagið“) hefur síðan á síðasta stjórnarfundi tekið fyrir 6 tilkynningar eigenda áskriftarréttinda að hlutum í félaginu, að nafnvirði samtals 4.625.000 kr., um nýtingu réttindanna.

Um er að ræða nýtingu áskriftarréttinda sem seld voru á árinu 2019 á grundvelli bráðabirgðaákvæðis II í samþykktum félagsins. Kaupverð hinna nýju hluta nemur kr. 70.871.250 og því er reiknað meðalgengi 15,3235140

Með vísan til samninga um útgáfu áskriftarréttindanna er stjórn skylt að hækka hlutafé til að mæta skuldbindingum samkvæmt réttindunum og gefa út hlutafé, skrá rétthafa í hlutaskrá og tryggja skráningu þeirra sem rétthafa í verðbréfamiðstöð, sbr. lög nr. 7/2020 um verðbréfamiðstöðvar, uppgjör og rafræna eignaskráningu fjármálagerninga.

Stjórn nýtti í dag heimild sína samkvæmt bráðabirgðaákvæða II í samþykktum félagsins til að hækka hlutafé þess í þeim tilgangi að mæta nýtingu framangreindra áskriftarréttinda. Hlutafé félagsins verður því hækkað um kr. 4.625.000 og mun eftir hækkun standa í kr. 4.928.896.980 að nafnvirði, með útgáfu nýrra hluta.

Áskriftarréttindi sem gefin voru út og seld á grundvelli bráðabirgðarákvæðis II við samþykktir félagsins hafa nú verið nýtt að fullu og er því ekki frekari heimild fyrir hendi til stjórnar til hlutafjárhækkunar á grundvelli þess ákvæðis.

Hlutafjárhækkunin verður tilkynnt til og skráð af Fyrirtækjaskrá Skattsins og nýir hlutir verða gefnir út af Nasdaq verðbréfamiðstöð og óskað verður eftir töku þeirra til viðskipta á Aðalmarkaði Nasdaq Iceland.

Tilkynning þessi er í samræmi við verklag sem félagið tilkynnti um þann 19. september 2019.