FlokkurRIKB 24 0415
ISINIS0000033009
Gjalddagi15.04.2024
Útboðsdagur02.12.2022
Uppgjörsdagur07.12.2022
  
UppkaupsflokkurRIKB 23 0515
Uppkaupsverð (clean)97,9000

Á útboðsdegi, milli kl. 10:30 og 11:00, fer fram útboð hjá Lánamálum ríkisins á ríkisbréfum í þeim flokki, með því ISIN númeri og með þeim gjalddaga sem fram kemur í töflunni hér að ofan. Ríkisbréfin verða afhent rafrænt á uppgjörsdegi.

Eingöngu er hægt að greiða fyrir flokkinn með uppkaupsflokknum á uppkaupsverði. Ekki er tekið við greiðslu í reiðufé.

Verðmæti uppkaupsbréfanna er metið á uppkaupsverði að viðbættum áföllnum vöxtum (þ.e. dirty price). Afhenda þarf Seðlabankanum bréfin fyrir kl. 14:00 á uppgjörsdegi.

Lánamál ríkisins greiða ekki þóknun vegna kaupa á RIKB 23 0515.

Að öðru leyti er vísað til lýsingar skuldabréfaflokksins og almennra útboðsskilmála ríkisbréfa á heimasíðu Lánamála ríkisins.

Nánari upplýsingar veitir Magnús Freyr Hrafnsson, Lánamálum ríkisins í síma 569 9679.