Í 19. gr. laga nr. 20/2021 um upplýsingaskyldu útgefenda verðbréfa og flöggunarskyldu segir að ef útgefandi lækkar hlutafé skuli hann við fyrsta tækifæri og í síðasta lagi á síðasta viðskiptadegi þessa mánaðar er breytingar eiga sér stað, birta opinberlega heildarfjölda hluta og heildarfjölda atkvæða.
Það tilkynnist hér með að heildarfjöldi hluta í Símanum hf. er í dag, 8. nóvmeber 2022, kr. 4.400.000.000 að nafnverði og fylgir eitt atkvæði hverjum hlut í félaginu. Félagið á 133.774.939 eigin hluti. Vísað er til tilkynningu frá félaginu um lækkun hlutafjár frá 28. október 2022.
Nánari upplýsingar veitir Davíð Scheving fjárfestatengill Símans í netfangi fjarfestatengsl@siminn.is.
