Stjórn Reita fasteignafélags hf. samþykkti nýja endurkaupaáætlun félagsins þann 23. september 2022 og var henni hrint í framkvæmd þann 26. september 2022, sbr. tilkynningu til kauphallar þann 23. september 2022. Endurkaupaáætlunin er framkvæmd í samræmi við ákvæði hlutafélagalaga nr. 2/1995, 5. gr. reglugerðar Evrópuþingsins og ráðsins (ESB) um markaðssvik nr. 596/2014, sem og framselda reglugerð framkvæmdastjórnarinnar 2016/1052, samanber lög um aðgerðir gegn markaðssvikum nr. 60/2021.
Í 44. viku 2022 keypti Reitir fasteignafélag hf. 750.000 eigin hluti að kaupverði 69.050.000 kr. skv. sundurliðun hér á eftir:
Dagsetning | Tími | Keyptir hlutir | Gengi | Kaupverð | Eigin hlutir eftir viðskipti |
31/10/22 | 11:32 | 200.000 | 91,75 | 18.350.000 | 15.304.762 |
31/10/22 | 11:38 | 100.000 | 91,75 | 9.175.000 | 15.404.762 |
1/11/22 | 10:52 | 200.000 | 94,50 | 18.900.000 | 15.604.762 |
2/11/22 | 13:27 | 250.000 | 90,50 | 22.625.000 | 15.854.762 |
Samtals | 750.000 | 69.050.000 | 15.854.762 |
Reitir hafa nú keypt samtals 4.854.762 eigin hluti samkvæmt áætluninni eða sem nemur 74,7% af þeim eigin hlutum sem að hámarki verða keyptir samkvæmt núgildandi áætlun.
Kaupverð hinna keyptu hluta nemur samtals 432.054.639 kr. sem samsvarar 73,9% af þeirri fjárhæð sem að hámarki verður keypt fyrir. Reitir eiga nú samtals 15.854.762 eigin hluti, eða um 2,08% af heildarhlutafé félagsins.
Samkvæmt núgildandi endurkaupaáætlun verða að hámarki keyptir 6.500.000 hlutir og fjárhæð endurkaupanna verður aldrei hærri en 585 milljónir króna.
Upplýsingar veitir Einar Þorsteinsson, fjármálastjóri, í síma 669 4416 eða á einar@reitir.is
