Í viku 38 keypti Kvika banki hf. („Kvika“ eða „bankinn“) 7.771.265 eigin hluti að kaupverði 149.759.989 kr. eins og nánar er greint frá hér á eftir:
Dagsetning | Tími | Keyptir hlutir | Viðskiptaverð (gengi) | Kaupverð |
19.9.2022 | 11:19:38 | 1.000.000 | 19,95 | 19.950.000 |
19.9.2022 | 13:39:11 | 1.000.000 | 19,8 | 19.800.000 |
20.9.2022 | 09:36:12 | 1.000.000 | 19,85 | 19.850.000 |
20.9.2022 | 09:37:34 | 1.000.000 | 19,85 | 19.850.000 |
21.9.2022 | 09:31:31 | 1.000.000 | 19,2 | 19.200.000 |
21.9.2022 | 14:24:56 | 500.000 | 19,1 | 9.550.000 |
21.9.2022 | 15:22:54 | 500.000 | 19 | 9.500.000 |
22.9.2022 | 09:38:54 | 1.771.000 | 18,1 | 32.055.100 |
22.9.2022 | 13:47:46 | 265 | 18,45 | 4.889 |
Samtals | 7.771.265 | 149.759.989 |
Um er að ræða viðskipti bankans í samræmi við endurkaupaáætlun félagsins sem tilkynnt var um í Kauphöll þann 18. maí sl. og er gerð í samræmi við heimild hluthafafundar Kviku þann 31. mars 2022.
Kvika átti 140.100.000 eigin hluti fyrir viðskiptin og hefur nú keypt samtals 147.871.265 eigin hluti samkvæmt áætluninni eða sem nemur 3,006% af útgefnum hlutum í félaginu. Nemur heildarkaupverð þeirra 2.999.999.989 kr. Endurkaup samkvæmt áætluninni máttu nema að hámarki 3.000.000.000 að kaupverði.
Endurkaupaáætlunin var í gildi frá 19. maí 2022 til aðalfundar Kviku á árinu 2023, nema hámarks kaupverði yrði náð fyrir þann tíma.
Framkvæmd endurkaupaáætlunarinnar var í samræmi við lög, þ.m.t. lög um hlutafélög nr. 2/1995, reglugerð Evrópuþingsins og ráðsins (ESB) um markaðssvik (MAR) nr. 596/2014, sem og framselda reglugerð framkvæmdastjórnar ESB (EU) 2016/1052 frá 8. mars 2016, sbr. lög um aðgerðir gegn markaðssvikum nr. 60/2021 sem tóku gildi á Íslandi 1. september 2021.
Nánari upplýsingar veita fjárfestatengsl Kviku banka á netfanginu fjarfestatengsl@kvika.is
