Alda Credit Fund II slhf. gaf út skuldabréfin ACF II 18 1 sem tekin voru til viðskipta hjá NASDAQ OMX Iceland hf. á árinu 2021. Meðfylgjandi er árshlutareikningur 30. júní 2022:
- Hagnaður félagsins á tímabilinu nam 23,8 m.kr. samkvæmt rekstrarreikningi.
- Heildareignir námu 8.382 m.kr. samkvæmt efnahagsreikningi.
- Eigið fé nam 1.798 m.kr. samkvæmt efnahagsreikningi.
- Árshlutareikningurinn var kannaður af Deloitte ehf. Við könnun þeirra kom ekkert fram sem bendir til annars en að árshlutareikningurinn gefi glögga mynd af afkomu félagsins á tímabilinu, efnahag hans 30. júní 2022 og breytingu á handbæru fé á tímabilinu, í samræmi við alþjóðlega reikningsskilastaðla eins og þeir hafa verið staðfestir af Evrópusambandinu, viðbótarkröfur í lögum um ársreikninga og lögum um rekstraraðila sérhæfðra sjóða.
Nánari upplýsingar veitir Þorkell Magnússon, framkvæmdastjóri Alda Credit Fund II slhf. í síma 854-1090.
Viðhengi
