Kvika banki hf.: Reglubundin tilkynning um kaup á eigin bréfum í samræmi við endurkaupaáætlun
Í viku 27 keypti Kvika banki hf. („Kvika“ eða „bankinn“) 2.600.000 eigin hluti að kaupverði 50.677.500 kr. eins og nánar er greint frá hér á eftir:
Dagsetning | Tími | Keyptir hlutir | Viðskiptaverð (gengi) | Kaupverð |
4.7.2022 | 14:23:27 | 1.000.000 | 19 | 19.000.000 |
6.7.2022 | 13:51:41 | 600.000 | 19,4 | 11.640.000 |
7.7.2022 | 10:39:11 | 500.000 | 19,825 | 9.912.500 |
8.7.2022 | 11:37:48 | 500.000 | 20,25 | 10.125.000 |
Samtals | 2.600.000 | 50.677.500 |
Um er að ræða viðskipti bankans í samræmi við endurkaupaáætlun félagsins sem tilkynnt var um í Kauphöll þann 18. maí sl. og er gerð í samræmi við heimild hluthafafundar Kviku þann 31. mars 2022.
Kvika átti 49.000.000 eigin hluti fyrir viðskiptin og hefur nú keypt samtals 51.600.000 eigin hluti samkvæmt áætluninni eða sem nemur 1,068% af útgefnum hlutum í félaginu. Nemur heildarkaupverð þeirra 1.006.815.000 kr. Endurkaup samkvæmt áætluninni munu nema að hámarki 3.000.000.000 að kaupverði.
Endurkaupaáætlunin er í gildi frá 19. maí 2022 til aðalfundar Kviku á árinu 2023, nema hámarks kaupverði verði náð fyrir þann tíma.
Framkvæmd endurkaupaáætlunarinnar verður í samræmi við lög, þ.m.t. lög um hlutafélög nr. 2/1995, reglugerð Evrópuþingsins og ráðsins (ESB) um markaðssvik (MAR) nr. 596/2014, sem og framselda reglugerð framkvæmdastjórnar ESB (EU) 2016/1052 frá 8. mars 2016, sbr. lög um aðgerðir gegn markaðssvikum nr. 60/2021 sem tóku gildi á Íslandi 1. september 2021.
Nánari upplýsingar veita fjárfestatengsl Kviku banka á netfanginu fjarfestatengsl@kvika.is
