Í 26 viku 2022 keypti Festi alls 225.000 eigin hluti fyrir 45.800.000 kr. eins og hér segir:
Vika | Dagsetning | Tímasetning viðskipta | Keyptir hlutir | Viðskiptaverð | Kaupverð | Keyptir hlutir alls | Heildar kaupverð alls |
26 | 22.6.2022 | 12:03:37 | 50.000 | 200 | 10.000.000 | 50.000 | 10.000.000 |
26 | 22.6.2022 | 14:22:00 | 50.000 | 202 | 10.100.000 | 100.000 | 20.100.000 |
26 | 22.6.2022 | 15:12:17 | 50.000 | 202 | 10.100.000 | 150.000 | 30.200.000 |
26 | 24.6.2022 | 14:08:43 | 75.000 | 208 | 15.600.000 | 225.000 | 45.800.000 |
225.000 | 45.800.000 |
Framkvæmd endurkaupaáætlunarinnar er í samræmi við VIII. kafla laga um hlutafélög nr. 2/1995 og viðauka II við reglugerð um innherjaupplýsingar og markaðssvik nr. 630/2005.
Fyrir kaupin þá átti Festi enga hluti í félaginu. Festi hefur nú keypt samtals 225.000 eigin hluti fyrir 45.800.000 kr. og á í dag 225.000 hluti sem samsvarar 0,07% af hlutafé félagsins. Um er að ræða tilkynningu um kaup Festi á eigin bréfum í samræmi við endurkaupaáætlun sem var tilkynnt um 21. júní 2022 í tilkynningu til Nasdaq OMX Iceland. Áætlað er að kaupa að hámarki 5.000.000 eigin hluti í félaginu eða sem samsvarar 1,60% af útgefnu hlutafé, þó þannig að fjárhæð endurkaupanna verði aldrei meiri en 1.150 milljónum króna að kaupverði.
Nánari upplýsingar veitir Magnús Kr. Ingason, fjármálastjóri Festi hf. (mki@festi.is).
