Í viku 24 keypti Kvika banki hf. („Kvika“ eða „bankinn“) 5.000.000 eigin hluti að kaupverði 95.750.000 kr. eins og nánar er greint frá hér á eftir:
Dagsetning | Tími | Keyptir hlutir | Viðskiptaverð (gengi) | Kaupverð |
13.6.2022 | 09:33:23 | 1.000.000 | 19,4 | 19.400.000 |
13.6.2022 | 13:54:38 | 1.000.000 | 19,4 | 19.400.000 |
14.6.2022 | 09:39:53 | 1.000.000 | 19,1 | 19.100.000 |
14.6.2022 | 13:33:19 | 1.000.000 | 18,95 | 18.950.000 |
16.6.2022 | 09:32:46 | 1.000.000 | 18,9 | 18.900.000 |
Samtals | 5.000.000 | 95.750.000 |
Um er að ræða viðskipti bankans í samræmi við endurkaupaáætlun félagsins sem tilkynnt var um í Kauphöll þann 18. maí sl. og er gerð í samræmi við heimild hluthafafundar Kviku þann 31. mars 2022.
Kvika átti 26.000.000 eigin hluti fyrir viðskiptin og hefur nú keypt samtals 31.000.000 eigin hluti samkvæmt áætluninni eða sem nemur 0,642% af útgefnum hlutum í félaginu. Nemur heildarkaupverð þeirra 617.362.500 kr. Endurkaup samkvæmt áætluninni munu nema að hámarki 3.000.000.000 að kaupverði.
Endurkaupaáætlunin er í gildi frá 19. maí 2022 til aðalfundar Kviku á árinu 2023, nema hámarks kaupverði verði náð fyrir þann tíma.
Framkvæmd endurkaupaáætlunarinnar verður í samræmi við lög, þ.m.t. lög um hlutafélög nr. 2/1995, reglugerð Evrópuþingsins og ráðsins (ESB) um markaðssvik (MAR) nr. 596/2014, sem og framselda reglugerð framkvæmdastjórnar ESB (EU) 2016/1052 frá 8. mars 2016, sbr. lög um aðgerðir gegn markaðssvikum nr. 60/2021 sem tóku gildi á Íslandi 1. september 2021.
Nánari upplýsingar veitir Halldór Karl Högnason, forstöðumaður fjárstýringar, í síma 540 3200.
