Stjórn Reita fasteignafélags hf. samþykkti endurkaupaáætlun félagsins þann 27. apríl 2022 og var henni hrint í framkvæmd þann 28. apríl 2022, sbr. tilkynningu til kauphallar þann 27. apríl 2022. Endurkaupaáætlunin er framkvæmd í samræmi við ákvæði hlutafélagalaga nr. 2/1995, 5. gr. reglugerðar Evrópuþingsins og ráðsins (ESB) um markaðssvik nr. 596/2014, sem og framselda reglugerð framkvæmdastjórnarinnar 2016/1052, samanber lög um aðgerðir gegn markaðssvikum nr. 60/2021.
Í 21. viku 2022 keypti Reitir fasteignafélag hf. 723.967 eigin hluti að kaupverði 68.545.873 kr. skv. sundurliðun hér á eftir:
Dagsetning | Tími | Keyptir hlutir | Viðskiptaverð | Kaupverð | Hlutir í eigu Reita eftir viðskipti |
23.5.2022 | 13:10 | 200.000 | 94,75 | 18.950.000 | 5.476.033 |
23.5.2022 | 15:18 | 123.967 | 94,75 | 11.745.873 | 5.600.000 |
24.5.2022 | 10:01 | 200..000 | 94,75 | 18.950.000 | 5.800.000 |
24.5.2022 | 10:08 | 200.000 | 94,5 | 18.900.000 | 6.000.000 |
Samtals | 723.967 | 68.545.873 | 6.000.000 |
Endurkaupaáætlun Reita fasteignafélags hf., sem tilkynnt var um í Kauphöll þann 27. apríl 2022, er nú lokið. Samkvæmt áætluninni máttu endurkaup félagsins nema allt að 6.000.000 hluta og heildarkaupverð mátti ekki nema hærri fjárhæð en 650 milljónum króna.
Félagið hefur nú keypt samtals 6.000.000 eigin hluti fyrir samtals 597.387.327 kr. í samræmi við endurkaupaáætlunina, og er því framangreindu marki um hámarks fjölda hluta sem keyptir verða náð. Reitir eiga nú samtals 6.000.000 eigin hluti, eða um 0,79% af heildarhlutafé félagsins.
Upplýsingar veitir Einar Þorsteinsson, fjármálastjóri, í síma 669 4416 eða á einar@reitir.is
