Stjórn Reita fasteignafélags hf. samþykkti endurkaupaáætlun félagsins þann 27. apríl 2022 og var henni hrint í framkvæmd þann 28. apríl 2022, sbr. tilkynningu til kauphallar þann 27. apríl 2022. Endurkaupaáætlunin er framkvæmd í samræmi við ákvæði hlutafélagalaga nr. 2/1995, 5. gr. reglugerðar Evrópuþingsins og ráðsins (ESB) um markaðssvik nr. 596/2014, sem og framselda reglugerð framkvæmdastjórnarinnar 2016/1052, samanber lög um aðgerðir gegn markaðssvikum nr. 60/2021.
Í 19. viku 2022 keypti Reitir fasteignafélag hf. 750.000 eigin hluti að kaupverði 73.262.500 kr. skv. sundurliðun hér á eftir:
Dagsetning | Tími | Keyptir hlutir | Viðskiptaverð | Kaupverð | Hlutir í eigu Reita eftir viðskipti |
9.5.2022 | 10:35 | 100.000 | 98,50 | 9.850.000 | 2.376.033 |
9.5.2022 | 13:40 | 300.000 | 97,50 | 29.250.000 | 2.676.033 |
10.5.2022 | 14:29 | 250..000 | 98,25 | 24.562.500 | 2.926.033 |
12.5.2022 | 10:18 | 100.000 | 96,00 | 9.600.000 | 3.026.033 |
Samtals | 750.000 | 73.262.500 | 3.026.033 |
Reitir hafa nú keypt samtals 3.026.033 eigin hluti samkvæmt áætluninni eða sem nemur 50,43% af þeim eigin hlutum sem að hámarki verða keyptir samkvæmt núgildandi áætlun. Kaupverð hinna keyptu hluta nemur samtals 308.953.954 kr. sem samsvarar 47,53% af þeirri fjárhæð sem að hámarki verður keypt fyrir. Reitir eiga nú samtals 3.026.033 eigin hluti, eða um 0,40% af heildarhlutafé félagsins.
Samkvæmt núgildandi endurkaupaáætlun verða að hámarki keyptir 6.000.000 hlutir og fjárhæð endurkaupanna verður aldrei hærri en 650 milljónir króna.
Upplýsingar veitir Einar Þorsteinsson, fjármálastjóri, í síma 669 4416 eða á einar@reitir.is
