Sjóvá-Almennar tryggingar hf.: Reglubundin tilkynning um kaup á eigin bréfum í samræmi við endurkaupaáætlun
Í viku 17 keypti Sjóvá 3.775.000 eigin hluti að kaupverði 146.923.000 kr. eins og nánar er greint frá hér á eftir:
Dagsetning | Tími | Keyptir hlutir | Viðskiptaverð (gengi) | Kaupverð (kr.) |
25.4.2022 | 09:34:47 | 755.000 | 39,20 | 29.596.000 |
26.4.2022 | 09:49:00 | 150.000 | 39,00 | 5.850.000 |
26.4.2022 | 09:56:35 | 150.000 | 39,00 | 5.850.000 |
26.4.2022 | 10:12:41 | 8.214 | 39,00 | 320.346 |
26.4.2022 | 10:48:32 | 1.170 | 39,00 | 45.630 |
26.4.2022 | 13:21:52 | 256 | 39,00 | 9.984 |
26.4.2022 | 13:31:35 | 445.360 | 39,00 | 17.369.040 |
27.4.2022 | 14:56:20 | 755.000 | 39,40 | 29.747.000 |
28.4.2022 | 13:00:51 | 755.000 | 38,60 | 29.143.000 |
29.4.2022 | 09:47:21 | 755.000 | 38,40 | 28.992.000 |
Samtals | 3.775.000 | 146.923.000 | ||
Er hér um að ræða kaup félagsins á eigin hlutum í samræmi við endurkaupaáætlun félagsins sem tilkynnt var um í Kauphöll þann 25. febrúar 2022.
Sjóvá átti 9.733.754 eigin hluti fyrir viðskiptin og eiga að þeim loknum 13.508.754 eigin hluti eða sem nemur 1,11% af útgefnum hlutum í félaginu.
Sjóvá hefur keypt samtals 12.412.472 eigin hluti samkvæmt áætluninni eða sem nemur 1,02% af útgefnum hlutum í félaginu og nemur heildarkaupverð þeirra 453.198.293 kr. Endurkaup samkvæmt áætluninni munu nema að hámarki 16.527.124 hlutum þannig að eigin hlutir nemi að hámarki 1,45% af útgefnum hlutum í félaginu. Heildarkaupverð má þó ekki vera hærra en 500.000.000 kr. Endurkaupaáætlunin er í gildi til og með 30. júní 2022, nema skilyrði um hámarkskaup verði uppfyllt fyrir þann tíma.
Framkvæmd endurkaupaáætlunarinnar verður í samræmi við lög um hlutafélög nr. 2/1995, II. kafla viðauka við reglugerð nr. 630/2005 um innherjaupplýsingar og markaðssvik, 5. gr. reglugerðar Evrópuþingsins og ráðsins (ESB) um markaðssvik nr. 596/2014, sem og framselda reglugerð framkvæmdastjórnarinnar 2016/1052, samanber lög um aðgerðir gegn markaðssvikum nr. 60/2021.
Nánari upplýsingar veitir:
Andri Már Rúnarsson í síma 772-5590 eða á netfangið fjarfestar@sjova.is
