Í viku 17 keypti Reginn 1.999.425 eigin hluti að kaupverði 77.497.713 kr. eins og nánar er greint frá hér á eftir:
Dagsetning | Tími | Keyptir hlutir | Viðskiptaverð (gengi) | Kaupverð (kr.) |
25.4.2022 | 09:34:13 | 399.885 | 39,00 | 15.595.515 |
26.4.2022 | 15:20:02 | 399.885 | 38,80 | 15.515.538 |
27.4.2022 | 15:24:29 | 399.885 | 39,00 | 15.595.515 |
28.4.2022 | 14:51:57 | 399.885 | 38,80 | 15.515.538 |
29.4.2022 | 09:50:45 | 399.885 | 38,20 | 15.275.607 |
Samtals | 1.999.425 | 77.497.713 | ||
Er hér um að ræða kaup félagsins á eigin hlutum í samræmi við endurkaupaáætlun félagsins sem tilkynnt var um í Kauphöll þann 7. febrúar og 11. mars 2022.
Reginn átti 10.318.537 eigin hluti fyrir viðskiptin og eiga að þeim loknum 12.317.962 eigin hluti eða sem nemur 0,68% af útgefnum hlutum í félaginu.
Reginn hefur keypt 12.317.962 eigin hluti samkvæmt áætluninni eða sem nemur 0,68% af útgefnum hlutum í félaginu og nemur heildarkaupverð þeirra 451.284.695 kr. Endurkaup samkvæmt áætluninni munu nema að hámarki 15.060.241 hlutum þannig að eigin hlutir nemi að hámarki 0,83% af útgefnum hlutum í félaginu. Heildarkaupverð má þó ekki vera hærra en 500.000.000 kr. Endurkaupaáætlunin er í gildi til og með 30. júní 2022, nema skilyrði um hámarkskaup verði uppfyllt fyrir þann tíma.
Framkvæmd endurkaupaáætlunarinnar er í samræmi við VIII. kafla laga um hlutafélög nr. 2/1995, II. kafla viðauka við reglugerð nr. 630/2005 um innherjaupplýsingar og markaðssvik, 5. gr. reglugerðar Evrópuþingsins og ráðsins (ESB) um markaðssvik nr. 596/2014, sem og framselda reglugerð framkvæmdastjórnarinnar 2016/1052, samanber lög um aðgerðir gegn markaðssvikum nr. 60/2021.
Nánari upplýsingar:
Rósa Guðmundsdóttir – Framkvæmdastjóri fjármála– rosa@reginn.is – S: 844 4776
