Meðfylgjandi má finna staðfestingu KPMG ehf. á skýrslum Haga hf. um fjárhagslegar kvaðir í tengslum við skuldabréfaútgáfu HAGA021029 og HAGA181024. Útreikningar og staðfesting fjárhagslegra skilyrða skal fara fram í kjölfar birtingar hálfsárs- og ársreiknings félagsins en ársuppgjör Haga var birt í gær, þann 28. apríl 2022.
Yfirferð staðfestingaraðila á fjárhagslegum kvöðum samræmist mati Haga hf. og voru skýrslur félagsins um fjárhagslegar kvaðir því staðfestar.
Nánari upplýsingar veitir Guðrún Eva Gunnarsdóttir, framkvæmdastjóri fjármálasviðs Haga, geg@hagar.is
Viðhengi
