Eik fasteignafélag hf. hefur birt lýsingu dagsetta 27. apríl 2022. Lýsingin samanstendur af tveimur aðskildum skjölum, útgefandalýsingu og verðbréfalýsingu, og er birt í tengslum við umsókn útgefanda um að skuldabréf í flokknum EIK 24 1 verði tekin til viðskipta á Aðalmarkaði Nasdaq Iceland hf. Lýsingin hefur verið staðfest af Fjármálaeftirliti Seðlabanka Íslands.

Íslandsbanki hf. hafði umsjón með því ferli að fá lýsinguna staðfesta hjá Fjármálaeftirliti Seðlabanka Íslands og töku skuldabréfaflokksins til viðskipta. Lýsingin er hér meðfylgjandi og má einnig finna á heimasíðu útgefanda, www.eik.is/fjarfestar. Lýsinguna má jafnframt nálgast á skrifstofu félagsins í Sóltúni 26 í Reykjavík. Áætlað er að skuldabréfaflokkurinn verði tekinn til viðskipta þann 2. maí 2022.

Nánari upplýsingar veitir Lýður H. Gunnarsson, framkvæmdastjóri fjármálasviðs, á netfanginu lydur@eik.is eða í síma 820-8980.

Viðhengi