Sjóvá-Almennar tryggingar hf. birta uppgjör fyrsta ársfjórðungs 2022 eftir lokun markaða fimmtudaginn 5. maí nk.

Kynningarfundur í fundarsal félagsins í Kringlunni 5 og í vefstreymi.

Markaðsaðilum og fjárfestum er boðið á kynningarfund í fundarsal félagsins í Kringlunni 5, 6. hæð þann 5. maí nk., kl. 16:15. Þar munu Hermann Björnsson forstjóri, Sigríður Vala Halldórsdóttir framkvæmdastjóri fjármála og upplýsingatækni og Þórður Pálsson forstöðumaður fjárfestinga kynna uppgjörið.  

Kynningunni verður jafnframt streymt á slóðinni https://www.sjova.is/um-okkur/fjarfestar/afkomukynning-1f-2022/.

Vilji aðilar bera upp spurningar má senda þær á netfangið fjarfestar@sjova.is fyrir fundinn eða á meðan á fundi stendur og verður þeim svara

Uppgjörsefni verður aðgengilegt á vef Sjóvár www.sjova.is/fjarfestar frá þeim tíma er kynningin hefst og verður upptaka af fundinum aðgengileg á sömu síðu að fundi loknum.

Nánari upplýsingar veitir: Andri Már Rúnarsson, fjárfestatengill, í síma 772-5590 eða netfangið fjarfestar@sjova.is