Sjóvá-Almennar tryggingar hf.: Reglubundin tilkynning um kaup á eigin bréfum í samræmi við endurkaupaáætlun
Í viku 46 keypti Sjóvá 990.000 eigin hluti að kaupverði 38.016.000 kr. eins og nánar er greint frá hér á eftir:
Dagsetning | Tími | Keyptir hlutir | Viðskiptaverð (gengi) | Kaupverð (kr.) |
15.11.2021 | 12:11:08 | 330.000 | 38,60 | 12.738.000 |
17.11.2021 | 10:31:17 | 18.077 | 38,60 | 697.772 |
17.11.2021 | 14:35:08 | 619 | 38,60 | 23.893 |
17.11.2021 | 14:58:30 | 311.304 | 38,60 | 12.016.334 |
18.11.2021 | 11:33:17 | 330.000 | 38,00 | 12.540.000 |
Samtals | 990.000 | 38.016.000 | ||
Er hér um að ræða kaup félagsins á eigin hlutum í samræmi við endurkaupaáætlun félagsins sem tilkynnt var um í Kauphöll þann 24. september 2021.
Sjóvá átti 33.253.409 eigin hluti fyrir viðskiptin og eiga að þeim loknum, m.t.t. hlutafjárlækkun sem átti sér stað í vikunni, 32.569.612 eigin hluti eða sem nemur 2,57% af útgefnum hlutum í félaginu.
Sjóvá hefur keypt samtals 5.967.365 eigin hluti samkvæmt áætluninni eða sem nemur 0,47% af útgefnum hlutum í félaginu og nemur heildarkaupverð þeirra 230.739.596 kr. Endurkaup samkvæmt áætluninni munu nema að hámarki 7.042.253 hlutum þannig að eigin hlutir nemi að hámarki 2,65% af útgefnum hlutum í félaginu. Heildarkaupverð má þó ekki vera hærra en 250.000.000 kr. Endurkaupaáætlunin er í gildi til og með 10. mars 2022, nema skilyrði um hámarkskaup verði uppfyllt fyrir þann tíma.
Framkvæmd endurkaupaáætlunarinnar er í samræmi við VIII. kafla laga um hlutafélög nr. 2/1995 og viðauka við reglugerð um innherjaupplýsingar og markaðssvik nr. 630/2005, sem ber heitið „Viðskipti með eigin bréf í endurkaupaáætlunum og verðjöfnun fjármálagerninga.“
Nánari upplýsingar veitir:
Andri Már Rúnarsson í síma 772-5590 eða á netfangið fjarfestar@sjova.is
