Þann 23. júní síðastliðinn var birt tilkynning þess efnis að stjórn Skeljungs hf. hefði tekið ákvörðun um að meta framtíðarkosti eignarhalds á fasteignum félagsins og að fyrirtækjaráðgjöf Íslandsbanka yrði félaginu til ráðgjafar.

Síðan þá hefur verið lögð vinna í að meta fasteignir félagsins, sérstaklega á höfuðborgarsvæðinu, en einnig á Vesturlandi og Reykjanesi.

Stjórn félagsins hefur nú tekið ákvörðun um að setja eftirfarandi fasteignir og lóðir félagsins í söluferli með það í huga að leigja þær til baka, að hluta eða öllu leyti. Þar ber helst að telja eftirfarandi eignir (neðangreindur listi er ekki tæmandi):

- Austurströnd 7 (Suðurströnd), 170 Seltjarnarnes
- Birkimelur 1, 107 Reykjavík
- Baulan, 311 Borgarnesi
- Brúartorg 6, 310 Borgarnes
- Bústaðavegur 20, 108 Reykjavík
- Dalvegur 20, 201 Kópavogur
- Fitjum, 260 Reykjanesbæ
- Grjótháls 8 (Vesturlandsvegur), 110 Reykjavík
- Gylfaflöt 1, 112 Reykjavík
- Hagasmári 9, 201 Kópavogur
- Kleppsvegur, 104 Reykjavík
- Laugavegur 180, 105 Reykjavík
- Litlatún 1, 210 Garðabær
- Miklabraut 101 (norður), 105 Reykjavík
- Miklabraut 100 (suður), 105 Reykjavík
- Óseyrarbraut 2 (Kænan), 220 Hafnarfjörður
- Reykjavíkurvegur 58, 220 Hafnarfjörður
- Skagabraut 43, 300 Akranesi
- Skógarhlíð 16, 105 Reykjavík
- Suðurfell 4, 111 Reykjavík


Heildarvirði eigna sem hér um ræðir nemur u.þ.b. 10 ma.kr. samkvæmt bráðabirgðamati sem er háð ýmsum forsendum m.a. framtíðarleigutekjum en ráðgjafar félagsins munu vinna áfram í mati á virði umræddra eigna.

Framangreindar eignir verða því settar í formlegt söluferli og verður fyrirtækjaráðgjöf Íslandsbanka Skeljungi til ráðgjafar í því ferli.

Félagið mun halda eftir öðrum fasteignum og lóðum félagsins að svo stöddu. Frekari upplýsingar um framgang málsins verða birtar eftir því sem ferlinu vindur fram.

Nánari upplýsingar veitir Árni Pétur Jónsson, forstjóri, fjarfestar@skeljungur.is

www.skeljungur.is
https://www.linkedin.com/company/skeljungur-hf/