Í 27. viku 2021 keypti Vátryggingafélag Íslands hf. (VÍS) 3.000.000 eigin hluti fyrir kr. 56.737.500 eins og hér segir:
Vika | Dagsetning | Tími | Keyptir hlutir | Viðskiptaverð | Kaupverð | Eigin hlutir eftir viðskipti |
27 | 8.7.2021 | 14:33 | 1.500.000 | 18,625 | 27.937.500 | 60.849.253 |
27 | 9.7.2021 | 09:44 | 1.500.000 | 19,20 | 28.800.000 | 62.349.253 |
Samtals | 3.000.000 | 56.737.500 | 62.349.253 |
Kaupin eru í samræmi við endurkaupaáætlun félagsins sem hrint var í framkvæmd 8. júlí 2021, sbr. tilkynningu á markað sama dag.
VÍS hefur keypt samtals 3.000.000 hluti í félaginu sem samsvarar 8,57% af þeim eigin hlutum sem að hámarki var heimilt að kaupa samkvæmt áætluninni. Kaupverð hinna keyptu hluta nemur samtals kr. 56.737.500. VÍS á nú samtals 62.349.253 hluti eða 3,29% af heildarhlutafé félagsins sem er 1.894.462.192.
Í endurkaupaáætluninni kemur fram að ekki verði keyptir fleiri en 35.000.000 hlutir. Framkvæmd endurkaupaáætlunar og tilkynningar um viðskipti með eigin bréf eru í samræmi við lög um hlutafélög nr. 2/1995 og II. kafla viðauka reglugerðar nr. 630/2005, um innherjaupplýsingar og markaðssvik.