Í viku 21 keypti Sjóvá 1.293.012 eigin hluti að kaupverði 43.121.950 kr. eins og nánar er greint frá hér á eftir:

DagsetningTímiKeyptir hlutirViðskiptaverð (gengi)Kaupverð (kr.)
27.05.202110:16:07                    481.834  33,5016.141.439
27.05.202110:18:32                    164.67233,505.516.512
28.05.202110:14:13                   646.50633,2021.463.999
Samtals                   1.293.012 43.121.950

Er hér um að ræða kaup félagsins á eigin hlutum í samræmi við endurkaupaáætlun félagsins sem tilkynnt var um í Kauphöll þann 31. mars 2021.

Sjóvá átti 14.092.830 eigin hluti fyrir viðskiptin og eiga að þeim loknum 15.385.842 eigin hluti eða sem nemur 1,15% af útgefnum hlutum í félaginu.

Sjóvá hefur keypt samtals 8.920.782 eigin hluti samkvæmt áætluninni eða sem nemur 0,67% af útgefnum hlutum í félaginu og nemur heildarkaupverð þeirra 291.503.443 kr. Endurkaup samkvæmt áætluninni munu nema að hámarki 17.006.802 hlutum þannig að eigin hlutir nemi að hámarki 1,76% af útgefnum hlutum í félaginu. Heildarkaupverð má þó ekki vera hærra en 500.000.000 kr. Endurkaupaáætlunin er í gildi til og með 10. mars 2022, nema skilyrði um hámarkskaup verði uppfyllt fyrir þann tíma.

Framkvæmd endurkaupaáætlunarinnar er í samræmi við VIII. kafla laga um hlutafélög nr. 2/1995 og viðauka við reglugerð um innherjaupplýsingar og markaðssvik nr. 630/2005, sem ber heitið „Viðskipti með eigin bréf í endurkaupaáætlunum og verðjöfnun fjármálagerninga.“

Nánari upplýsingar veitir:

Sigríður Vala Halldórsdóttir í síma 844-2136 eða á netfangið fjarfestar@sjova.is