Í 20. viku 2021 keypti VÍS 10.000.000 eigin hluti fyrir kr. 160.450.000 eins og hér segir:
Vika | Dagsetning | Tími | Keyptir hlutir | Viðskiptaverð | Kaupverð | Eigin hlutir eftir viðskipti |
20 | 17.05.2021 | 11:40 | 2.000.000 | 16,3 | 32.600.000 | 33.349.253 |
20 | 18.05.2021 | 09:45 | 2.000.000 | 16,125 | 32.250.000 | 35.349.253 |
20 | 19.05.2021 | 09:39 | 2.000.000 | 15,95 | 31.900.000 | 37.349.253 |
20 | 20.05.2021 | 09:56 | 2.000.000 | 15,9 | 31.800.000 | 39.349.253 |
20 | 21.05.2021 | 09:43 | 2.000.000 | 15,95 | 31.900.000 | 41.349.253 |
Samtals | 10.000.000 | 160.450.000 | 41.349.253 |
Kaupin eru í samræmi við endurkaupaáætlun félagsins sem hrint var í framkvæmd 17. maí 2021, sbr. tilkynningu á markað sama dag.
VÍS hefur keypt samtals 10.000.000 hluti í félaginu sem samsvarar 35,57% af þeim eigin hlutum sem að hámarki var heimilt að kaupa samkvæmt áætluninni. Kaupverð hinna keyptu hluta nemur samtals kr. 160.450.000 sem samsvarar 32,09% af þeirri fjárhæð sem að hámarki mátti kaupa fyrir. VÍS á nú samtals 41.349.253 hluti eða 2,18% af heildarhlutafé félagsins sem er 1.894.462.192.
Í endurkaupaáætluninni kemur fram að ekki verði keyptir fleiri en 28.112.939 hlutir og fjárhæð endurkaupanna ekki vera hærri en 500 milljónir króna. Áætlunin er í gildi til 17. júlí 2021, nema skilyrði um hámarkskaup verði uppfyllt fyrir þann tíma. Framkvæmd endurkaupaáætlunar og tilkynningar um viðskipti með eigin bréf eru í samræmi við lög um hlutafélög nr. 2/1995 og II. kafla viðauka reglugerðar nr. 630/2005, um innherjaupplýsingar og markaðssvik.