Lánasjóður sveitarfélaga hefur ákveðið að efna til útboðs á skuldabréfum í LSS150434 miðvikudaginn 19. maí 2021. Lánasjóðurinn stefnir að því að taka tilboðum að fjárhæð 1.000 milljónir króna að markaðsvirði. Lánasjóðurinn áskilur sér rétt til að hækka og lækka útboðsfjárhæð útboðsins, taka hvaða tilboði sem er að fullu eða hluta, eða hafna þeim öllum. Lánasjóðurinn hefur boðið aðalmiðlurum sjóðsins Arion banka, Íslandsbanka, Kviku banka og Landsbankanum að taka þátt í útboðinu.
Óskað er eftir tilboðum í samræmi við eftirfarandi lýsingu:
Viðhengi