Landsbankinn mun halda lokað útboð á sértryggðum skuldabréfum þriðjudaginn 11. maí kl. 15:00. Boðinn verður til sölu einn óverðtryggður flokkur, LBANK CB 25.
Lánshæfiseinkunn sértryggðra skuldabréfa Landsbankans er A- með stöðugum horfum samkvæmt mati S&P.
Áætlaður uppgjörsdagur er 18. maí 2021.
Markaðsviðskipti Landsbankans hafa umsjón með útboðinu. Hægt er að nálgast nánari upplýsingar í síma 410-7330 eða með tölvupósti, verdbrefamidlun@landsbankinn.is.