Sjóvá-Almennar tryggingar hf. munu birta uppgjör fyrsta ársfjórðungs 2021 eftir lokun markaða miðvikudaginn 12. maí. Markaðsaðilum er boðið á kynningarfund í fundarsal félagsins í Kringlunni 5, 6. hæð kl. 16:15 þann sama dag.
Hermann Björnsson forstjóri mun kynna afkomu félagsins á fyrsta ársfjórðungi 2021. Verður kynningunni einnig streymt beint á slóðinni https://www.sjova.is/um-okkur/fjarfestar/afkomukynning/. Vilji aðilar sem sækja fundinn í streymi bera upp spurningar sem tengjast uppgjörinu má senda þær á netfangið fjarfestar@sjova.is á meðan á útsendingu stendur og verður þeim svarað í lok kynningarinnar. Þess er jafnframt óskað að þeir sem sækja ætla fundinn skrái sig fyrirfram til þátttöku á fundinum á netfangið fjarfestar@sjova.is.
Uppgjörsefni verður aðgengilegt á vef Sjóvár www.sjova.is/fjarfestar frá þeim tíma er kynningin hefst og verður upptaka af fundinum aðgengileg á sömu síðu að fundi loknum.