Í viku 16 keypti Sjóvá 1.939.518 eigin hluti að kaupverði 63.616.190 kr. eins og nánar er greint frá hér á eftir:

DagsetningTímiKeyptir hlutirViðskiptaverð (gengi)Kaupverð (kr.)
19.04.202109:32:13  450.95832,6014.701.231
19.04.202109:41:22195.54832,606.374.865
20.04.202112:05:04                    646.50632,9021.270.047
21.04.202109:39:37646.50632,9021.270.047
Samtals               1.939.518 63.616.190

Er hér um að ræða kaup félagsins á eigin hlutum í samræmi við endurkaupaáætlun félagsins sem tilkynnt var um í Kauphöll þann 31. mars 2021.

Sjóvá átti 10.373.625 eigin hluti fyrir viðskiptin og eiga að þeim loknum 12.313.143 eigin hluti eða sem nemur 0,92% af útgefnum hlutum í félaginu.

Sjóvá hefur keypt samtals 3.996.909 eigin hluti samkvæmt áætluninni eða sem nemur 0,30% af útgefnum hlutum í félaginu og nemur heildarkaupverð þeirra 129.650.473 kr. Endurkaup samkvæmt áætluninni munu nema að hámarki 17.006.802 hlutum þannig að eigin hlutir nemi að hámarki 1,90% af útgefnum hlutum í félaginu. Heildarkaupverð má þó ekki vera hærra en 500.000.000 kr. Endurkaupaáætlunin er í gildi til og með 10. mars 2022, nema skilyrði um hámarkskaup verði uppfyllt fyrir þann tíma.

Framkvæmd endurkaupaáætlunarinnar er í samræmi við VIII. kafla laga um hlutafélög nr. 2/1995 og viðauka við reglugerð um innherjaupplýsingar og markaðssvik nr. 630/2005, sem ber heitið „Viðskipti með eigin bréf í endurkaupaáætlunum og verðjöfnun fjármálagerninga.“

Nánari upplýsingar veitir:

Sigríður Vala Halldórsdóttir í síma 844-2136 eða á netfangið fjarfestar@sjova.is