Landsbankinn mun halda lokað útboð á sértryggðum skuldabréfum fimmtudaginn 15. apríl kl. 15:00. Boðnir verða til sölu tveir óverðtryggðir flokkar, LBANK CB 23 og LBANK CB 25.
Lánshæfiseinkunn sértryggðra skuldabréfa Landsbankans er A- með stöðugum horfum samkvæmt mati S&P.
Áætlaður uppgjörsdagur er 23. apríl 2021.
Markaðsviðskipti Landsbankans hafa umsjón með útboðinu. Hægt er að nálgast nánari upplýsingar í síma 410-7330 eða með tölvupósti, verdbrefamidlun@landsbankinn.is.