Í  11. viku, 2021 keypti félagið 8.000.000 eigin hluti fyrir kr. 124.650.000 eins og hér segir:

VikaDagsetningTími Keyptir hlutir Viðskiptaverð Kaupverð  Eigin hlutir eftir viðskipti
1115.03.202109:32              2.000.000 15,675   31.350.000       10.000.000
1116.03.202109:45              2.000.000 15,4   30.800.000       12.000.000
1117.03.202110:18              2.000.000 15,5   31.000.000       14.000.000
1118.03.202109:33              2.000.000 15,75   31.500.000       16.000.000
Samtals                8.000.000   124.650.000       16.000.000

Er hér um að ræða tilkynningu um kaup félagsins á eigin hlutum í samræmi við endurkaupaáætlun félagsins sem hrint var í framkvæmd þann 9. mars 2021, sbr. tilkynningu á markað dags. 9. mars 2021. Samkvæmt endurkaupaáætluninni skyldu keyptir að hámarki 34.000.000 hlutir og fjárhæð endurkaupanna ekki hærri en 500 milljónir króna.

Gildistími áætlunarinnar var til og með 18. mars  2021, nema ef skilyrði um hámarkskaup hefðu verið uppfyllt fyrir þann tíma. Endurkaupum samkvæmt áætluninni er því lokið en VÍS hefur keypt samtals 16.000.000 hluti í félaginu sem samsvarar 47,06% af þeim eigin hlutum sem að hámarki var heimilt að kaupa. Kaupverð hinna keyptu hluta nemur samtals kr. 249.000.000 sem samsvarar 49,80% af þeirri fjárhæð sem að hámarki mátti kaupa fyrir. VÍS á nú samtals 0,84% af heildarhlutafé félagsins, sem er 1.894.462.192 hlutir.

Framkvæmd endurkaupaáætlunar og tilkynningar um viðskipti með eigin bréf eru í samræmi við lög um hlutafélög nr. 2/1995 og II. kafla viðauka reglugerðar nr. 630/2005, um innherjaupplýsingar og markaðssvik.