Eftirtalin gefa kost á sér til stjórnar, varastjórnar og tilnefningarnefndar Sýnar á aðalfundi, sem haldinn verður föstudaginn 19. mars 2021 kl. 15:00.
Framboð til aðalstjórnar:
* Hjörleifur Pálsson
* Tanya Zharov
* Sigríður Vala Halldórsdóttir
* Petrea Ingileif Guðmundsdóttir
* Páll Gíslason
Framboð til varastjórnar:
* Óli Rúnar Jónsson
* Þyri Dröfn Konráðsdóttir
Framboðsfrestur er nú útrunninn og hefur stjórn félagsins staðfest lögmæti framboðanna. Í samþykktum Sýnar hf. kemur fram að fimm skipa stjórn félagsins og tveir sitja í varastjórn. Verður því sjálfkjörið í báðum tilvikum. Nánari upplýsingar um frambjóðendur er að finna í skýrslu tilnefningarnefndar, sem birt var með aðalfundarboði þann 25. febrúar sl.
Framboð til tilnefningarnefndar:
Í samræmi við starfsreglur stjórnar og starfsreglur tilnefningarnefndar gefst hluthöfum jafnframt tækifæri á að kjósa tvo af þremur í tilnefningarnefnd. Þriðji meðlimur í tilnefningarnefnd er tilnefndur af stjórn félagsins.
Framboð til tilnefningarnefndar:
* Ragnheiður S. Dagsdóttir
* Þröstur Olaf Sigurjónsson
Þar sem einungis tvö framboð til tilnefningarnefndar bárust innan framboðsfrests verða þeir nefndarmenn sem kosnir eru af aðalfundi félagsins sjálfkjörnir.
Fyrirkomulag aðalfundar
Líkt og getið var um í aðalfundarboði þann 25. febrúar og 5. mars sl. þá verður aðalfundur Sýnar hf. haldinn í aðalstöðvum félagsins að Suðarlandsbraut 8, Reykjavík, föstudaginn 19. mars kl. 15:00. Jafnframt er gefinn kostur á rafrænni þátttöku á fundinum, án þess að hluthafar séu viðstaddir á fundarstað, í gegnum aðalfundakerfi Lumi AGM. Rafræn þátttaka mun því jafngilda mætingu á fundinn og veita þátttöku í honum að öðru leyti.
Hluthafar eða umboðsmenn hluthafa sem hafa hug á að sækja fundinn, hvort sem þeir ætla að mæta á fundarstað eða taka þátt í fundinum með rafrænum hætti, þurfa að skrá sig til að nálgast aðgangsupplýsingar á vefsvæðinu www.smartagm.com eigi síðar en kl. 15:00 þann 18. mars nk. eða sólarhring fyrir fundardag, þar sem ekki er hægt að tryggja aðgang að fundinum berist skráning eftir þann tíma.
Í ljósi samkomutakmarkana eru þeir hluthafar sem hyggjast mæta á fundinn á fundarstað beðnir um að láta vita um mætingu á fundinn við fyrsta tækifæri með því að senda skilaboð á adalfundur2021@syn.is svo hægt sé að áætla þann fjölda sem mætir.
Nánari leiðbeiningar um skráningu á aðalfundinn og rafræna þátttöku og atkvæðagreiðslu er hægt að finna á vefsvæði félagsins: syn.is/fjarfestatengsl/adalfundur. Þar er jafnframt að finna önnur fundargögn og frekari upplýsingar tengdar aðalfundinum.
Sýn hf.
Reykjavík, ICELAND
Sýn hf. Logo
Formats available: