Flokkur | RIKB 22 1026 |
ISIN | IS0000020717 |
Gjalddagi | 26.10.2022 |
Útboðsdagur | 05.03.2021 |
Uppgjörsdagur | 10.03.2021 |
Uppkaupsflokkur | RIKB 21 0805 |
Uppkaupsverð (clean) | 100,9500 |
Á útboðsdegi, milli kl. 13:30 og 14:00, fer fram útboð hjá Lánamálum ríkisins á ríkisbréfum í þeim flokki, með því ISIN númeri og með þeim gjalddaga sem fram kemur í töflunni hér að ofan. Greiðslur fyrir ríkisbréfin þurfa að berast Seðlabankanum fyrir kl. 14:00 á uppgjörsdegi og verða bréfin afhent rafrænt sama dag.
Andvirði uppkaupsbréfanna ásamt áföllnum vöxtum og verðbótum kemur sem greiðsla fyrir kaupum á nýjum bréfum.
Lánamál ríkisins greiða ekki þóknun vegna kaupa á RIKB 21 0805
Ath. að ekki er tekið við greiðslu í reiðufé. Eingöngu má greiða fyrir flokkinn með uppkaupsflokkinum á uppkaupsverði.
Til nánari upplýsinga er að öðru leyti vísað til lýsingar skuldabréfaflokksins og almennra útboðsskilmála ríkisbréfa á heimasíðu Lánamála ríkisins.
Nánari upplýsingar veitir Oddgeir Gunnarsson, Lánamálum ríkisins í síma 569 9635.
Ríkissjóður Íslands - Lánamál ríkisins
Reykjavík, ICELAND
Ríkissjóður Íslands - Lánamál ríkisins Logo
Formats available: