| Source: Festi hf.
Aðalfundur Festi hf.
Aðalfundur Festi hf. verður haldinn mánudaginn 22. mars 2021 klukkan 10.00
í höfuðstöðvum félagsins að Dalvegi 10-14, Kópavogi.
Dagskrá fundarins
- Skýrsla stjórnar um starfsemi félagsins á liðnu starfsári.
- Skýrsla forstjóra og ársreikningur kynntur.
- Staðfesting ársreiknings fyrir síðastliðið reikningsár og tekin ákvörðun um hvernig fara skuli með hagnað félagsins.
- Ákvörðun tekin um greiðslu arðs vegna rekstrarársins 2020.
- Tilnefningarnefnd kynnir skýrslu sína og tillögur.
- Stjórnarkjör.
- Tillaga um staðfestingu á ákvörðun stjórnar um skipun tveggja einstaklinga í tilnefningarnefnd.
- Kjör endurskoðanda eða endurskoðunarfirma.
- Ákvörðun um þóknun til stjórnarmanna, undirnefnda stjórnar og tilnefningarnefndar.
- Tillaga stjórnar um breytingu á starfskjarastefnu félagsins.
- Tillaga stjórnar um heimild til kaupa á eigin hlutabréfum.
- Tillaga um lækkun á hlutafé vegna eigin hluta og breytingu á samþykktum félagsins
- Tillaga stjórnar um breytingu á starfsreglum tilnefningarnefndar.
- Önnur mál löglega upp borin.
Nánari upplýsingar um fundinn og skýrslu tilnefningarnefndar er að finna í viðhengi.
Related Articles
More articles issued by
More articles related to: