Hagnaður 526 milljónir króna á 4. ársfjórðungi 2020
Helstu niðurstöður
Eggert Þór Kristófersson, forstjóri Festi:
„Rekstur Festi samstæðunnar á árinu 2020 gekk vel þrátt fyrir mjög krefjandi aðstæður þar sem samkomubönn og sóttvarnarráðstafanir höfðu mikil áhrif á öll dótturfélögin. N1 fann mikið fyrir minni umferð og algjöru hruni í ferðaþjónustunni en þá kom sér vel að þjónustusvæði félagsins er sterkt um allt land og í öllum atvinnugreinum. Kappkostað var að veita viðskiptavinum framúrskarandi þjónustu á öllum sviðum og enn eitt árið jukust umsvif bílaþjónustu félagsins. ELKO átti sitt besta ár frá upphafi þrátt fyrir að næststærsta verslun félagsins í Leifsstöð væri nánast lokuð í 10 mánuði árið 2020. Þessa velgengni má meðal annars þakka sterkum innviðum vefverslunar ELKO. Festi er einnig stór hluthafi í Dropp sem er í samstarfi við ELKO um afhendingu á vörum á sautján N1 þjónustustöðvum um landið og hefur það hjálpað okkur að tryggja betri þjónustu fyrir viðskiptavini í COVID19 faraldrinum. Umsvif Krónunnar jukust á árinu og var velta félagsins sú mesta frá upphafi. Þar kom einnig Snjallverslun Krónunnar til sögunnar sem er snjallforrit sem viðskiptavinir geta nýtt sér vilji þeir gera innkaupin á netinu og fá sent heim. Krónan opnaði þrjár nýjar verslanir á árinu, ELKO og N1 opnuðu nýjar verslanir á Akureyri sem hafa allar hlotið góðar viðtökur.
Á heildina litið gekk reksturinn vel við þessar aðstæður og á starfsfólk okkar heiður skilinn fyrir framúrskarandi vinnu við að þjónusta viðskiptavini okkar. Það er gæfa Festi að eiga sterk vörumerki sem eru öll leiðtogar á sínum mörkuðum. Við sjáum ennþá mikil tækifæri í samstæðunni til framtíðar með nýtingu á tækni og lausnum sem auðvelda líf okkar viðskiptavina.
Horfur í rekstri Festi samstæðunnar eru góðar og félagið er vel í stakk búið til að takast á við verkefnin framundan. Umhverfismál eru stór hluti af okkar starfsemi og munum við áfram leggja mikla áherslu á gæði og öryggismál til að tryggja öryggi starfsmanna og viðskiptavina,“ segir Eggert Þór Kristófersson, forstjóri Festi.
Nánari upplýsingar er að finna í viðhengjum.
Attachments