Aðalfundur Skeljungs hf. verður haldinn kl. 16:00, fimmtudaginn 4. mars 2021 í sölum 2-3 á Icelandair Hótel Reykjavík Natura, Nauthólsvegi 52, 102 Reykjavík.

Meðfylgjandi er endanleg dagskrá aðalfundarins og endanlegar tillögur sem lagðar verða fyrir fundinn. Tillögurnar og dagskráin er efnislega óbreytt frá því boðað var til fundarins 11. febrúar, fyrir utan minniháttar orðalagsbreytingar. Vakin er athygli á að frestur hluthafa til að fá mál sett á dagskrá aðalfundar og til að leggja fram tillögur rennur út 22. febrúar kl. 16:00. 

Upplýsingar um mikilvægar dagsetningar og fresti ásamt fundargögnum má finna á heimasíðu félagsins: https://www.skeljungur.is/hluthafafundur-2021

Vakin er athygli á því að tilhögun fundarhalda kann að taka breytingum með vísan til þeirra sóttvarnarreglna sem í gildi verða á fundardegi, svo sem með því að halda fundinn rafrænt, að gættum öllum reglum hlutafélagalaga um hluthafafundi. Verða breytingar þar að lútandi tilkynntar í Kauphöll eigi síðar en þremur sólarhringum fyrir fundinn.

Hluthafar eru hvattir til að forskrá sig á aðalfund félagsins mt.t. sóttvarnarreglna með því að senda nafn og kt. og eftir atvikum útfyllt umboðseyðublað á fjarfestar@skeljungur.is.

Skráning á aðalfundinn á fundarstað er frá kl. 15:00 á fundardegi. 

Nánari upplýsingar veitir Árni Pétur Jónsson, forstjóri, fjarfestar@skeljungur.is.

www.skeljungur.is

https://www.linkedin.com/company/skeljungur-hf/

Viðhengi