AAM GLEQ3 gaf út skuldabréf sem tekin voru til viðskipta hjá NASDAQ OMX Iceland hf. á árinu 2016. Meðfylgjandi er ársreikningur fyrir árið 2020.
Hagnaður sjóðsins á árinu 2020 nam 112 þús. kr. samkvæmt rekstrarreikningi.
Hrein eign sjóðsins nam 516 þús. kr. samkvæmt efnahagsreikningi.
Ársreikningurinn var kannaður af Deloitte ehf. Það er álit endurskoðanda að ársreikningur sjóðsins gefi glögga mynd af afkomu sjóðsins á tímabilinu, fjárhagsstöðu hans 31. desember 2020 og breytingu á handbæru fé á tímabilinu, í samræmi við lög um ársreikninga.
Nánari upplýsingar veitir starfsfólk Kviku eignastýringar hf. í síma 522-0010.