Landsbankinn hf. hefur birt viðauka dagsettan 19. janúar 2021 við grunnlýsingu útgáfuramma sértryggðra skuldabréfa sem dagsett er 17. apríl 2020.
Viðaukinn er á ensku og er birtur á rafrænu formi á vefsvæði fjármögnunar bankans, www.landsbankinn.is/sertryggd-skuldabref. Útprentuð eintök af viðaukanum má nálgast í höfuðstöðvum bankans að Austurstræti 11 í Reykjavík.
Landsbankinn hf.
Reykjavik, ICELAND