Uppgjör Haga hf. á 3. ársfjórðungi 2020/21

Árshlutareikningur Haga hf. fyrir þriðja ársfjórðung 2020/21 var samþykktur af stjórn og forstjóra félagsins á stjórnarfundi þann 14. janúar 2021. Reikningurinn er fyrir tímabilið 1. mars 2020 til 30. nóvember 2020. Árshlutareikningurinn hefur að geyma samstæðureikning félagsins og dótturfélaga þess og er hann gerður í samræmi við alþjóðlega reikningsskilastaðla (IFRS). Reikningurinn hefur hvorki verið kannaður né endurskoðaður af endurskoðendum félagsins, PricewaterhouseCoopers ehf.

Helstu lykiltölur

Helstu fréttir af starfseminni

Finnur Oddsson, forstjóri:

„Á heildina litið gekk rekstur á þriðja ársfjórðungi ágætlega en áhrifa heimsfaraldurs COVID-19 gætti, sem von er, á öllum sviðum rekstrar Haga. Tekjur á fjórðungnum jukust frá fyrra ári, en EBITDA var lítillega undir upprunalegum áætlunum og sama tímabili í fyrra.  Heilt yfir erum við sátt við niðurstöður fjórðungsins, einkum í ljósi þeirra áskorana sem COVID-19 faraldurinn skapar jafnt hérlendis sem annars staðar. Mestu skiptir að félagið er vel í stakk búið að takast á við þær ögranir sem fylgja áframhaldandi sóttvarnaraðgerðum og breyttu neyslumynstri viðskiptavina okkar.

Umsvif hafa haldið áfram að aukast í dagvöruverslun, í Bónus og Hagkaup. Tekjur vegna dagvöru jukust um ríflega 15% frá fyrra ári en aukningin var töluvert meiri í sérvöruverslun á vegum Haga.  Það var sérlega ánægjulegt að fylgjast með góðu gengi netverslunar á tímabilinu, einkum með leikföng og bækur hjá Hagkaup og fatnað og útivistarvöru hjá Zöru og Útilíf. Framlegð hefur hins vegar heldur dregist saman og talsverður kostnaður fallið til vegna sóttvarna- og öryggisgæslu, til að tryggja öryggi viðskiptavina og starfsfólks sem best á öllum tímum. Þrátt fyrir ágæta veltuaukningu er niðurstaðan því svipuð afkoma úr þessum þætti rekstrar Haga. Eins og búist var við gætir enn neikvæðra áhrifa á tekjur og afkomu Olís, samfara minni umferð á vegum og samdrætti í umsvifum atvinnulífs. Skýringin á lakari afkomu samstæðu liggur því að mestu hjá eldsneytissviði starfseminnar. 

Við gerum ráð fyrir að áhrifa faraldursins á rekstur Haga gæti áfram, a.m.k. fram á vor- og sumarmánuði.  Áhrif á verslunar- og vöruhúsarekstur Haga verða frekar jákvæð en neikvæð, en viðskiptavinir hafa lagað sig að þessum nýju aðstæðum með breyttri neysluhegðun, færri heimsóknum í verslanir og stærri meðalkaupum í hverri ferð. Þetta endurspeglast m.a. í kröftugri verslun fyrir jólin, þar sem tekjur jukust áfram svipað og mánuðina á undan og afkoman sömuleiðis. Til að bregðast við áframhaldandi neikvæðum áhrifum á rekstur Olís höfum við þegar skipulagt og að hluta til innleitt aðgerðir sem munu leiða til varanlegs rekstrarhagræðis.

Horfur í rekstri Haga til skemmri tíma eru því svipaðar og verið hefur undanfarna mánuði.  Til lengri tíma gerum við ráð fyrir að uppskera ávinning af nýjum stefnumótandi áherslum, þ.m.t. þrengri fókus um starfsemi félagsins, auknu samtali við viðskiptavini og þróun þjónustu okkar þannig að hún falli ávallt sem best að þörfum viðskiptavina, núverandi og nýjum.  Úrvinnsla stefnu- og skipulagsvinnu síðustu mánaða gengur vel, söluferli sérvörueininga vinnst samkvæmt áætlun og við höfum boðið nýja liðsmenn velkomna í teymið sem mun, sem fyrr, vinna að því markmiði að efla hag neytenda með framúrskarandi verslun.“

Nánari upplýsingar veita Finnur Oddsson, forstjóri félagsins (fo@hagar.is) og Guðrún Eva Gunnarsdóttir, framkvæmdastjóri rekstrar og samstæðu (geg@hagar.is), í síma 530-5500 eða tölvupósti.

Viðhengi