Tilnefningarnefnd Sjóvár auglýsir eftir framboðum og tilnefningum til stjórnar Sjóvár vegna aðalfundar félagsins sem haldinn verður föstudaginn 12. mars 2021.

Frestur til að skila inn framboðum og tilnefningum sem hljóta eiga umfjöllun tilnefningarnefndar er til loka þriðjudagsins 2. febrúar 2021. Tilkynning um framboð skal vera á sérstöku eyðublaði sem hægt er að nálgast á vefsvæði félagsins á slóðinni https://www.sjova.is/json/Eydublod/EYB-0208/frambod-stjornarsetu.pdf og skal skila á netfangið tilnefningarnefnd@sjova.is. 

Tillaga nefndarinnar að tilnefningu frambjóðenda til stjórnarsetu verður kynnt samhliða aðalfundarboði sem birt verður skemmst þremur vikum fyrir aðalfund.

Almennur framboðsfrestur til stjórnar er fimm sólarhringum fyrir aðalfund. Starfsemi tilnefningarnefndar takmarkar ekki heimild frambjóðenda til að skila inn framboðum til stjórnar fram að því tímamarki, en um þau framboð verður ekki fjallað í tillögu tilnefningarnefndar. Nefndin áskilur sér þó rétt til að endurskoða tillögu þá sem birt verður samhliða aðalfundarboði og verður endurskoðuð tillaga þá birt a.m.k. tveimur dögum fyrir aðalfund.