Lánasjóður sveitarfélaga var með skuldabréfaútboð í LSS150434 og LSS151155 þann 16. desember 2020. Uppgjör viðskipta fer fram 18. desember 2020.
Samkvæmt 1. gr. í skilmálum aðalmiðlarasamnings í tengslum við útgáfu skuldabréfa Lánasjóðs sveitarfélaga stendur aðalmiðlurum til boða að kaupa 10% af nafnverði þess sem selt var í útboðinu á meðalverði samþykktra tilboða til kl. 12 á næsta virka degi eftir að útboði lýkur. Hver aðalmiðlari sem á samþykkt tilboð í undangengnu útboði öðlast kauprétt í réttu hlutfalli við það magn sem þeir hafa keypt í útboðinu.
Alls bárust tilboð í LSS150434 að nafnvirði ISK 6.519.000.000 á bilinu 1,40% - 1,53%. Ákveðið var að taka tilboðum að nafnvirði ISK 2.406.000.000 á ávöxtunarkröfunni 1,46%. Að þessu sinni óskuðu aðalmiðlarar eftir að nýta sér kauprétt fyrir viðbót í LSS150434 fyrir ISK 136.600.000 að nafnvirði á ávöxtunarkröfunni 1,46% og hefur Lánasjóðurinn ákveðið að verða við þeim óskum. Heildarmagn seldra bréfa í útboðinu í LSS150434 að meðtaldri viðbótarútgáfunni er ISK 2.542.600.000. Heildarstærð flokksins að nafnvirði fyrir útboðið var ISK 76.058.252.565 en er nú ISK 78.600.852.565.
Alls bárust tilboð í LSS151155 að nafnvirði ISK 2.020.000.000 á bilinu 1,70% - 1,78%. Ákveðið var að taka tilboðum að nafnvirði ISK 420.000.000 á ávöxtunarkröfunni 1,70%. Að þessu sinni óskuðu aðalmiðlarar eftir að nýta sér kauprétt fyrir viðbót í LSS151155 fyrir ISK 42.000.000 að nafnvirði á ávöxtunarkröfunni 1,70% og hefur Lánasjóðurinn ákveðið að verða við þeim óskum. Heildarmagn seldra bréfa í útboðinu í LSS151155 að meðtaldri viðbótarútgáfunni er ISK 462.000.000. Heildarstærð flokksins að nafnvirði fyrir útboðið var ISK 24.471.000.000 en er nú ISK 24.933.000.000.
Nánari upplýsingar veitir:
Örvar Þ. Ólafsson
Sími: 515 4947
T-póstur: orvar@lanasjodur.is
Lánasjóður sveitarfélaga ohf
Reykjavík, ICELAND
Lánasjóður sveitarfélaga ohf Logo
Formats available: