Landsbankinn lauk í dag útboði sértryggðra skuldabréfa þar sem þrír flokkar voru boðnir til sölu.
Tilboð í útboðinu voru 23 talsins og námu samtals 5.360 m. kr. að nafnverði.
Tólf tilboð að fjárhæð 3.520 m. kr. að nafnverði bárust í flokkinn LBANK CB 23 á ávöxtunarkröfu á bilinu 2,60%-2,67%. Öllum tilboðum var tekið í flokkinn á ávöxtunarkröfunni 2,67%. Heildarstærð flokksins verður 41.760 m. kr. eftir viðbótarútgáfuna.
Fimm tilboð að fjárhæð 1.040 m. kr. að nafnverði barst í flokkinn LBANK CB 25 á ávöxtunarkröfunni 3,04%-3,07%. Öllum tilboðum var tekið í flokkinn á ávöxtunarkröfunni 3,07%. Heildarstærð flokksins verður 11.200 m.kr. eftir viðbótarútgáfuna.
Sex tilboð að fjárhæð 800 m. kr. að nafnverði bárust í flokkinn LBANK CBI 26 á ávöxtunarkröfu á bilinu 0,76%-0,79%. Engum tilboðum var tekið í flokkinn.
Stefnt er að töku skuldabréfanna til viðskipta á Nasdaq Iceland þann 15. desember 2020. Arion banki, Íslandsbanki og Kvika sinna viðskiptavakt með sértryggða skuldabréfaflokka Landsbankans.
Sértryggðu skuldabréfin eru gefin út með leyfi frá Fjármálaeftirlitinu með vísan í lög nr. 11/2008 og reglur Fjármálaeftirlits nr. 528/2008. Nánari upplýsingar um skuldabréfin og tryggingasafnið má finna á vefsvæði fjármögnunar bankans, www.landsbankinn.is/sertryggd-skuldabref.
Landsbankinn hf.
Reykjavik, ICELAND