Það tilkynnist hér með að frumvarp að fjárhagsáætlun Reykjavíkurborgar fyrir árið 2021 og 5 ára áætlun 2021 - 2025 verður lagt fram í borgarstjórn í dag 1. desember 2020.

Frumvarp að fjárhagsáætlun 2021 og 5 ára áætlun  2021 – 2025 fylgir hér með ásamt greinargerðum og fréttatilkynningu. Auk þess er lögð fram fjármálastefna og fjárfestingastefna Reykjavíkurborgar til tíu ára, ásamt Græna planinu, sóknaráætlun Reykjavíkurborgar til 2030.

Nánari upplýsingar veitir:

Halldóra Káradóttir
Sviðsstjóri Fjármála- og áhættustýringarsviðs Reykjavíkurborgar
Sími: 411-1111
Netfang: halldora.karadottir@reykjavik.is

Viðhengi