Lokuðu útboði á grænum skuldabréfum Orkuveitu Reykjavíkur lauk í dag, 1. desember 2020. Gefin voru út skuldabréf í flokkunum OR020934 GB og OR180255 GB en skuldabréfin eru verðtryggð jafngreiðslubréf með lokagjalddaga 2. september 2034 og 18. febrúar 2055.
Í heildina bárust tilboð upp á 3.890 m.kr. að nafnvirði í flokkana.
Heildartilboð í OR 020934 GB voru samtals 2.970 m.kr. á bilinu 1,28% - 1,44%. Tilboðum að fjárhæð 2.270 m.kr. var tekið á ávöxtunarkröfunni 1,36%.
Heildartilboð í OR180255 GB voru samtals 920 m.kr. á bilinu 1,42% - 1,47%. Tilboðum að fjárhæð 620 m.kr. var tekið á ávöxtunarkröfunni 1,43%.
Fossar markaðir hafa umsjón með útgáfu og sölu skuldabréfanna sem og töku þeirra til viðskipta á markaði Nasdaq á Íslandi með sjálfbær skuldabréf.
Nánari upplýsingar veita:
Ingvar Stefánsson, framkvæmdastjóri Fjármála OR, sími: 516-6100, netfang: ingvar.stefansson@or.is
Matei Manolescu, Markaðsviðskipti, Fossar markaðir, sími: 522 4008, netfang: matei.manolescu@fossarmarkets.com
Orkuveita Reykjavíkur
Reykjavik, ICELAND
Orkuveita Reykjavíkur Logo
Formats available: