Á aðalfundi Símans hf. sem haldinn var þann 12. mars 2020 var samþykkt að heimila stjórn félagsins að kaupa hlutabréf í félaginu þannig að það ásamt dótturfélögum þess eigi, að öðrum lagaskilyrðum uppfylltum, allt að 10% af hlutafé þess, þ.e. að hámarki kr. 875.000.000 að nafnverði, í þeim tilgangi að koma á viðskiptavakt með hluti í félaginu og/eða til að setja upp formlega endurkaupaáætlun. Endurkaupaáætlunin er í gildi fram að aðalfundi félagsins árið 2021, en þó aldrei lengur en til 12. mars 2021 eða skemur ef skilyrði um hámarkskaup eru uppfyllt fyrir þá dagsetningu.
Stjórn Símans hf. hefur á grundvelli fyrrgreindrar samþykktar aðalfundar og að teknu tilliti til kaupa á eigin hlutum samkvæmt endurkaupaáætlunum sem lauk 6. júlí 2020, 1. september 2020 og 9. október 2020, tekið ákvörðun um frekari kaup á eigin hlutum samkvæmt endurkaupaáætlun. Endurkaupin nú munu nema 500 milljónum króna að kaupverði.
Fossar markaðir hf. mun hafa umsjón með framkvæmd endurkaupaáætlunarinnar og taka allar viðskiptaákvarðanir er varða kaup á hlutum og tímasetningu kaupanna óháð félaginu. Framkvæmd endurkaupaáætlunarinnar verður í samræmi við lög um hlutafélög nr. 2/1995 og viðauka við reglugerð um innherjaupplýsingar og markaðssvik nr. 630/2005.
Kaupin verða framkvæmd í áföngum, þó þannig að kaup hvers dags verða að hámarki 5.358.393 hlutir sem jafngildir 25% af meðaltali daglegra viðskipta með hlutabréf félagsins í Kauphöll Íslands í október 2020. Endurgjald fyrir keypta hluti skal ekki vera hærra en sem nemur verði síðustu óháðu viðskipta eða hæsta fyrirliggjandi óháða kauptilboði í þeim viðskiptakerfum þar sem viðskipti með hlutina fara fram, hvort sem er hærra.
Kaup samkvæmt endurkaupaáætluninni hefjast föstudaginn 4. desember nk.
Viðskipti félagsins með eigin hluti í samræmi við endurkaupaáætlunina verða tilkynnt í samræmi við lög og reglugerðir.
Nánari upplýsingar veitir Davíð Scheving fjárfestatengill Símans í netfangi fjarfestatengsl@siminn.is.
Síminn hf.
Reykjavik, ICELAND
Síminn hf. Logo
Formats available: