Samsett hlutfall* í október 2020 var 103,1% og það sem af er ári, 107,5%. Samsett hlutfall síðustu 12 mánaða er 105,6%. Samsett hlutfall í október tekur mið af árstíðabundnum sveiflum í rekstri félagsins en þess má geta að eitt tjón telur 5% í hlutfallinu. Þá er í mánuðinum gjaldfærður hluti kostnaðar vegna þróunar á Ökuvísi.

VÍS greiddi viðskiptavinum sínum tæpan 1,5 milljarð króna í tjónabætur** í október og hefur greitt viðskiptavinum sínum tæpa 14,3 milljarða króna í tjónabætur það sem af er ári.

Ávöxtun fjárfestingaeigna í október var 1,0% en ávöxtun til loka október frá áramótum var 7,9%.

*Samsett hlutfall er tjónakostnaður, endurtryggingakostnaður og rekstrarkostnaður af vátryggingastarfsemi sem hlutfall af iðgjöldum tímabilsins samkvæmt leiðbeinandi tilmælum Seðlabanka Íslands, fjármálaeftirlits nr. 1/2020.

**Hafa skal í huga að tjónakostnaður tryggingafélaga getur sveiflast á milli mánaða.

Nánari upplýsingar veitir Erla Tryggvadóttir, samskiptastjóri VÍS, í síma 660-5260 eða með netfanginu erlat@vis.is