Stjórn Reita fasteignafélags hf. hefur samþykkt árshlutauppgjör samstæðunnar fyrir fyrstu níu mánuði ársins 2020. Helstu lykiltölur reikningsins eru:
Lykiltölur rekstrar
9M 2020 | 9M 2019 | |
Tekjur | 8.134 | 8.767 |
Rekstrarkostnaður fjárfestingareigna | -2.428 | -2.511 |
Stjórnunarkostnaður | -467 | -485 |
Rekstrarhagnaður fyrir matsbreytingu | 5.239 | 5.771 |
Matsbreyting fjárfestingareigna | -787 | 1.990 |
Rekstrarhagnaður | 4.452 | 7.761 |
Hrein fjármagnsgjöld | -4.593 | -4.288 |
Tap / hagnaður | -335 | 2.554 |
Tap / hagnaður á hlut | -0,51 kr. | 3,70 kr. |
NOI hlutfall | 56,8% | 62,5% |
Stjórnunarkostnaðarhlutfall | 5,2% | 5,3% |
Lykiltölur efnahags
30.9.2020 | 31.12.2019 | |
Fjárfestingareignir | 147.053 | 149.106 |
Handbært og bundið fé | 2.085 | 1.224 |
Heildareignir | 151.533 | 151.640 |
Eigið fé | 45.453 | 47.644 |
Vaxtaberandi skuldir | 88.023 | 85.297 |
Eiginfjárhlutfall | 30,0% | 31,4% |
Skuldsetningarhlutfall | 62,0% | 59,4% |
Lykiltölur um fasteignasafn
9M 2020 | 9M 2019 | |
Nýtingarhlutfall (tekjuvegið) | 94,7% | 94,9% |
Fjárhæðir eru í milljónum króna nema annað sé tekið fram.
Hlutföll í rekstarreikningi reiknuð sem hlutfall af heildartekjum.
Guðjón Auðunsson, forstjóri:
„Afkoma þriðja ársfjórðungs 2020 er í samræmi við þær horfur sem kynntar voru í tengslum við hlutafjárútboð Reita í október sl. og felur uppgjörið ekki í sér breytingar á áætluðum áhrifum af Covid-19 á rekstur félagsins.
Fréttir um að bóluefni, sem sýnir góða virkni gegn veirunni, sé á lokastigum prófana erlendis eru mjög jákvæðar og rénun faraldursins hérlendis eru sömuleiðis jákvæð tíðindi. Að óbreyttu eru því skilyrði að myndast fyrir öfluga jólaverslun innanlands. Viðsnúningur hagkerfisins mun hins vegar taka tíma og áhrifa Covid-19 á ferðaþjónustuna mun gæta áfram á árinu 2021 og jafnvel inn á árið 2022.
Góður gangur hefur verið í útleigu undanfarin misseri og nýting aukist, nýlega gerðu Reitir leigusamning við ISAVIA um ca. 2.000 m2 húsnæði í Dalshrauni í Hafnarfirði fyrir nýjar höfuðstöðvar félagsins, þá hafa nýir leigusamningar verið gerðir m.a. í Austurstræti 12a, á Höfðabakka og á Hallveigarstíg og verið er að vinna að gerð leigusamninga á fleiri stöðum. Brátt lýkur umfangsmiklum framkvæmdum á Eiríksgötu, þar sem um 5.000 fermetra endurnýjað húsnæði verður afhent Landspítala í árslok.
Á síðustu dögum októbermánaðar luku Reitir við sölu á nýju hlutafé, en seldir voru 120 millj. hlutir í forgangsréttarútboði hluthafa félagsins fyrir 5.160 millj. kr. en alls bárust áskriftir fyrir rúmlega tvöföldu því magni sem í boði var. Hlutafjáraukningin styrkir félagið enn frekar og gerir því kleift að glíma við afleiðingar veirunnar og eflir getu þess til að nýta áhugaverða fjárfestingarkosti á næstu mánuðum.“
Hækkun útgáfuramma félagsins
Á fundi sínum í dag samþykkti stjórn hækkun á útgáfuramma félagsins og verður ramminn allt að 100 milljarðar króna. Útgáfuramminn er umgjörð um útgáfu félagsins á skuldabréfum, bæði skráðum og óskráðum. Áður var heimild til útgáfu undir útgáfurammanum allt að 70 milljarðar króna.
Fjárhagsdagatal
Ársuppgjör 2020 15. febrúar 2021
Aðalfundur 2021 11. mars 2021
Frekari upplýsingar og kynningarfundur
Reitir bjóða fjárfestum og markaðsaðilum á rafrænan kynningarfund þar sem Guðjón Auðunsson, forstjóri, og Einar Þorsteinsson, fjármálastjóri, munu kynna uppgjörið. Fundurinn verður haldinn þriðjudaginn 17. nóvember kl. 8:30.
Nauðsynlegt er að skrá sig á fundinn, eftir skráningu fá þátttakendur staðfestingarpóst með nánari upplýsingum. Hægt verður að bera upp spurningar á fundinum með skriflegum hætti.
Skráning á kynningarfundinn: https://us02web.zoom.us/webinar/register/5716052657619/WN__5oxO7UCTFacQMjGvnmENQ
Kynningarefni fundarins er aðgengilegt á fjárfestasíðu Reita, http://www.reitir.is/fjarfestar.
Nánari upplýsingar veita Guðjón Auðunsson, forstjóri, í síma 575 9000 eða 660 3320, og Einar Þorsteinsson, fjármálastjóri, í síma 575 9000 eða 669 4416.
Um Reiti
Reitir fasteignafélag hf. er íslenskt hlutafélag. Samstæða félagsins samanstendur af móðurfélaginu, Reitum fasteignafélagi hf., ásamt dótturfélögum, sem öll eru að fullu í eigu móðurfélagsins. Starfsemi félagsins felst í eignarhaldi, útleigu og umsýslu atvinnuhúsnæðis sem er að stærstum hluta verslunar- og skrifstofuhúsnæði á höfuðborgarsvæðinu. Fasteignir í eigu félagsins eru um 135 talsins, um 440 þúsund fermetrar að stærð. Meðal fasteigna félagsins má nefna stærstan hluta verslunarmiðstöðvarinnar Kringlunnar, Spöngina og Holtagarða, skrifstofubyggingar við Höfðabakka 9 og Vínlandsleið ásamt húsnæði höfuðstöðva Sjóvár, Origo og Advania og skrifstofu Landspítalans við Skaftahlið 24. Hótelbyggingar í eigu Reita eru m.a. Hótel Borg og Hotel Hilton Reykjavík Nordica ásamt Icelandair Hotel Reykjavík Natura. Stærstu leigutakar Reita eru Hagar, Flugleiðahótel, ríki og sveitarfélög.
[Viðhengi
Viðhengi
Reitir fasteignafélag hf.
Reykjavík, ICELAND