Í 46-47. viku 2020, keypti félagið 1.320.946 eigin hluti fyrir 11.184.001 kr. eins og hér segir:

DagsetningTímasetning viðskiptaKeyptir hlutirViðskiptaverð (gengi)Kaupverð (kr.)
12.11.202014:0240.1088,36335.303
16.11.202013:321.280.8388,4710.848.698
 

Samtals
 1.320.946 11.184.001

Um er að ræða kaup félagsins á eigin hlutum í samræmi við endurkaupaáætlun félagsins, sem tilkynnt var um í Kauphöll þann 8. október 2020. Markmið áætlunarinnar er að lækka útgefið hlutafé félagsins. 

Skeljungur hefur nú keypt samtals 24.820.946 hluti í félaginu sem samsvarar hámarki af eigin hlutum sem heimilt er að kaupa í félaginu samkvæmt núgildandi áætlun. Kaupverð hinna keyptu hluta nemur samtals 198.514.001 krónum.

Skeljungur átti áður en fyrrnefnd áætlun hófst 24.820.946 eigin hluti í félaginu eða sem samsvarar 1,25% af útgefnu hlutafé.

Skeljungur á nú samtals 49.641.892 hluti, eða um 2,50% af heildarhlutafé félagsins.

Samkvæmt endurkaupaáætluninni var áætlað að kaupa allt að 24.820.946 eigin hluti í félaginu eða sem samsvarar 1,25% af útgefnu hlutafé, þó þannig að fjárhæð endurkaupanna yrði aldrei meiri en kr. 250.000.000, með þeim fyrirvara að félagið ásamt dótturfélögum þess mega mest eiga 10% hlutafjár þess.

Þar sem skilyrðum um hámarkskaup var náð í dag er gildistíma áætlunarinnar lokið. Endurkaupaáætlunin var framkvæmd í samræmi við lög nr. 2/1995 um hlutafélög og viðauka við reglugerð um innherjaupplýsingar og markaðssvik nr. 630/2005.

Nánari upplýsingar veitir Ólafur Þór Jóhannesson, framkvæmdastjóri fjármálasviðs, fjarfestar@skeljungur.is,

www.skeljungur.is

https://www.linkedin.com/company/skeljungur-hf/