» Hagnaður Landsbankans á þriðja ársfjórðungi 2020 nam 4 milljörðum króna eftir skatta.
» Afkoma bankans var jákvæð um 699 milljónir króna eftir skatta á fyrstu níu mánuðum ársins 2020.
» Landsbankinn færði 13,6 milljarða króna í virðisrýrnunarsjóð á fyrstu níu mánuðum ársins.
» Rekstrarkostnaður lækkar á milli ára.            
» Á fyrstu níu mánuðum ársins tóku um 7.700 einstaklingar og fjölskyldur íbúðalán eða endurfjármögnuðu eldri íbúðalán á betri kjörum hjá Landsbankanum. Um 800 voru að kaupa sína fyrstu fasteign.
» Innlán jukust um 106 milljarða króna frá áramótum sem er 15% aukning.
»  Landsbankinn fékk í september framúrskarandi einkunn í UFS-áhættumati Reitunar eða 86 stig af 100. Í matinu er skoðað hvernig bankinn vinnur að umhverfismálum, félagsþáttum og stjórnarháttum. Fyrr á árinu mældi matsfyrirtækið Sustainalytics Landsbankann út frá þessum þáttum og var bankinn í 2. sæti af 382 bönkum sem starfa í Evrópu. Landsbankinn fékk í september framúrskarandi einkunn í UFS-áhættumati Reitunar eða 86 stig af 100. Í matinu er skoðað hvernig bankinn vinnur að umhverfismálum, félagsþáttum og stjórnarháttum. Fyrr á árinu mældi matsfyrirtækið Sustainalytics Landsbankann út frá þessum þáttum og var bankinn í 2. sæti af 382 bönkum sem starfa í Evrópu.
» Landsbankinn er með sterka eiginfjár- og lausafjárstöðu sem er vel umfram kröfur eftirlitsaðila.

Hagnaður Landsbankans á þriðja ársfjórðungi 2020 nam 4 milljörðum króna, eftir skatta, samanborið við 3,2 milljarða króna hagnað á sama tímabili árið áður. Afkoma Landsbankans var jákvæð um 699 milljónir króna eftir skatta á fyrstu níu mánuðum ársins 2020 samanborið við 14,4 milljarða króna hagnað á sama tímabili árið 2019. Arðsemi eigin fjár á tímabilinu var 0,4% á ársgrundvelli, samanborið við arðsemi upp á 7,9% á sama tímabili 2019.

Hreinar vaxtatekjur voru 28,4 milljarðar króna samanborið við 30,1 milljarð króna á sama tímabili árið á undan, sem er 6% lækkun á milli tímabila. Hreinar þjónustutekjur námu 5,7 milljörðum króna og lækkuðu um 7% frá sama tímabili árið áður.

Á fyrstu níu mánuðum ársins nam virðisrýrnun útlána um 13,6 milljörðum króna, sem jafngildir um 1% af eignasafni bankans, samanborið við 3,4 milljarða króna á sama tímabili 2019. Virðisrýrnunin var að langmestu leyti bókfærð á fyrri helmingi ársins og byggði m.a. á ítarlegu mati á væntu útlánatapi vegna áhrifa COVID-19. Virðisrýrnun útlána á þriðja ársfjórðungi nam um 120 milljónum króna.

Vaxtamunur eigna og skulda nam 2,1% á fyrstu níu mánuðum ársins 2020 en var 2,4% á sama tímabili árið áður.

Rekstrarkostnaður bankans á fyrstu níu mánuðum ársins 2020 nam 17,4 milljörðum króna, samanborið við 17,7 milljarða króna á sama tímabili árið áður. Þar af var launakostnaður 10,8 milljarðar króna samanborið við 10,7 milljarða króna árið áður. Annar rekstrarkostnaður var 6,6 milljarðar króna samanborið við 7 milljarða króna á sama tímabili árið áður.

Kostnaðarhlutfall á fyrstu níu mánuðum ársins var 51,6%, samanborið við 41,4% á sama tímabili árið 2019.

Útlán til einstaklinga og fyrirtækja jukust um 10,1% frá áramótum, eða um rúma 115 milljarða króna, en þar af voru um 38 milljarðar króna vegna gengisbreytinga. Landsbankinn hefur aldrei lánað jafnmikið til heimila og á fyrstu níu mánuðum ársins 2020 en alls lánaði bankinn 89 milljarða króna í íbúðalán. Innlán hjá Landsbankanum jukust um 106 milljarða króna frá áramótum, sem er 15% aukning.

Eigið fé Landsbankans var 248,4 milljarðar króna hinn 30. september sl. og eiginfjárhlutfallið var 24,7%.

Lilja Björk Einarsdóttir, bankastjóri Landsbankans, segir: 
„Gott uppgjör fyrir þriðja ársfjórðung  endurspeglar styrk á miklum óvissutímum og bankinn er sem fyrr í góðri stöðu til að styðja við bakið á viðskiptavinum. Þrátt fyrir krefjandi aðstæður í efnahagslífinu finnum við fyrir góðum meðbyr. Mikil eftirspurn er eftir íbúðalánum bankans, jafnt af hálfu þeirra sem eru að kaupa fasteign og þeirra sem eru að endurfjármagna á betri kjörum. Góður gangur hefur verið í eignastýringu og fyrirtækjaráðgjöf bankans, innlán hafa aukist umtalsvert á árinu og nýlega lauk bankinn vel heppnuðu skuldabréfaútboði í norskum og sænskum krónum sem sýnir að bankinn hefur góðan aðgang að erlendum fjármagnsmörkuðum.

Við brugðumst fljótt við áhrifum kórónuveirufaraldurins bæði með því að bjóða viðskiptavinum ýmis úrræði til að takast á við vandann og með því að leggja verulegar fjárhæðir til hliðar vegna vænts útlánataps. Mat bankans á virðisrýrnun sem var gjaldfærð á fyrri árshelmingi var raunsætt og því hafa framlög í virðisrýrnunarsjóð ekki verið aukin nema að litlu leyti á þriðja ársfjórðungi. Áfram er þó mikil óvissa um áhrif faraldursins.

Það er ánægjulegt hversu vel viðskiptavinir okkar hafa tekið breytingum á þjónustu sem óhjákvæmilega hafa hlotist af faraldrinum. Langflest erindi er hægt að leysa í síma eða í gegnum tölvu. Frá því að faraldurinn hófst hafa um 20.000 manns pantað tíma í útibúi eða símtal og margir nýtt sér netspjall bankans til að hafa samband. Skilvirkni, gott starfsfólk og öflug stafræn þjónusta gera það að verkum að við höfum getað tekist á við aukið álag og sinnt erindum viðskiptavina fljótt og vel. Ánægja með þjónustuna mælist mikil og fjölmargir nýir viðskiptavinir hafa bæst í hópinn, jafnt fyrirtæki sem einstaklingar. Markaðshlutdeild bankans er sterk og hefur farið vaxandi.“

Föstudaginn 30. október kl. 10.00 mun bankinn bjóða upp á símafund á ensku þar sem farið verður yfir uppgjör bankans fyrir fyrstu níu mánuði ársins 2020. Vinsamlegast skráið ykkur á símafundinn með því að senda tölvupóst á netfangið ir@landsbankinn.is

Nánari upplýsingar veita:                

Rúnar Pálmason, upplýsingafulltrúi, samskipti@landsbankinn.is 

Hanna Kristín Thoroddsen, fjárfestatengsl, ir@landsbankinn.is

Viðhengi