Eik fasteignafélag hf. mun birta árshlutauppgjör fyrir fyrstu níu mánuði 2020 eftir lokun markaða miðvikudaginn 28. október nk.

Rafrænn kynningarfundur verður haldinn fimmtudaginn 29. október nk. klukkan 8:30. Garðar Hannes Friðjónsson, forstjóri og Lýður H. Gunnarsson, framkvæmdastjóri fjármálasviðs, munu kynna uppgjörið og svara spurningum að lokinni kynningu.

​Tengill á fundinn mun verða sendur út samhliða birtingu árshlutauppgjörsins.